Ég hef snúið aftur! Frá einveru er ég beið og beið eftir svari.  "Guð, hvers ætlastu til af mér?" spurði ég vel og lengi uns svarið barst:
"Páll, ég skal segja þér þína köllun: Þú skalt leiða til sigurs í næstu kosningum Kristilegan flokk.  Flokk sem að mun vörð standa um hin Kristilegu gildi og hið sanna hægri.  Sjálfstæðið hefur brugðist en nú dugir ekki að syrgja þá sem glataðir eru, heldur sverfa til stáls.  Mikið er verk það sem ég hef ætlað þér Páll en ekki hræðast - ég mun senda marga þína bræður þér til hjálpar.  Gakk nú fram Páll og ber þú eldsverð og básúnu svo sjáist þú úr fjarlægð og óvinir þínir heyri.  Gakk fram og hop ei!"
Aðeins Drottinn vor Jesú Kristur, Faðir vor og heilagur andi hefði getað fundið jafn einfalda sem og skilvirka lausn.  Kristilegi flokkurinn hefur hér með verið stofnaður og meðal stefnumála verður:
1. Algert bann við fósturdeyðingum.
2. Algert bann við skilnuðum
3.  Kristinfræði skal tekin upp á ný og kennd oftar og betur en áður hefur verið og aðeins af prestum og Guðfræðingum.
Ég mun birta ítarlegri hugmyndir á næstu dögum.  Áhugasamir lýsi yfir stuðningi hér á síðunni.
Ykkar bróðir í Drottni
-Páll
Nú liggur ljóst að Guðlaus armur vorra Sjálfstæðra hefur ákveðið að
reyna samstarf við Sovíet vinstrið. Mér fallast hendur og skelf allur
af ótta við reiði Drottins. Næstu daga mun ég biðja stöðugt uns ég hlýt
uppljómum og innblásinn skilnig á þessari stöðu. Ég mun tala við
Drottinn og rita aftur er hann gefur mér svar.
Ég óttast fyrir hönd vorra Sjálfstæðu bræðra er hafa snúið baki sínu
við Drottni:
4 Ekki þyrmdi Guð englunum, er þeir syndguðu. Hann steypti þeim niður í
undirdjúpin og setti þá í myrkrahella, þar sem þeir eru geymdir til
dómsins. 5 Ekki þyrmdi hann hinum forna heimi, en varðveitti Nóa,
prédikara réttlætisins, við áttunda mann, er hann lét vatnsflóð koma
yfir heim hinna óguðlegu. 6 Hann brenndi borgirnar Sódómu og Gómorru
til ösku og dæmdi þær til eyðingar og setti þær til viðvörunar þeim, er
síðar lifðu óguðlega. 7 En hann frelsaði Lot, hinn réttláta mann, er
mæddist af svívirðilegum lifnaði hinna guðlausu. 8 Sá réttláti maður
bjó á meðal þeirra og mæddist í sinni réttlátu sálu dag frá degi af
þeim ólöglegu verkum, er hann sá og heyrði.
Guð geymi okkur öll.
Ég skelfist hvað mun verða ef eitur þeirra Guðlausu vinstri mun glepja vor Sjálfstæðum sýn.  Ég skelf allur og nötra við þá tilhugsun.  Látið ekki freistast!  Áfram með B!  Aðeins þeir eru verðugir samstarfs við vora Kristnu Sjálfstæða.
AMEN!
Til að skila írak og Afganistan heilum inní vort Kristilega bræðralag.  Fram stíg Krossfarar og Bræður í Kristi, gráir fyrir járnum með eld í hjarta blessað Drottni.
Það er barátta í uppsiglingu, stærri en nokkru sinni fyrr.  Stríð milli réttlætis og ranglætis.  Rétttrúaðir og villingar munu etja kappa og Jörðin mun brenna af  hatri uns kærleikurinn sigrar og hlið Himna opanast svo niður stígi Drottinn vor Jesú dómari allra.
Sálir munu vegnar!
11Þá sá ég himininn opinn, og sjá: Hvítur hestur. Sá, sem á honum sat, heitir Trúr og Sannur, hann dæmir og berst með réttvísi. 12Augu hans eru sem eldslogi og á höfði hans eru mörg ennisdjásn. Og hann ber nafn ritað, sem enginn þekkir nema hann sjálfur. 13Hann er skrýddur skikkju, blóði drifinni, og nafn hans er: Orðið Guðs. 14Og hersveitirnar, sem á himni eru, fylgdu honum á hvítum hestum, klæddar hvítu og hreinu líni. 15Og af munni hans gengur út biturt sverð að slá þjóðirnar með, og hann stjórnar þeim með járnsprota. Og hann treður vínþröng heiftarreiði Guðs hins alvalda. 16Og á skikkju sinni og lend sinni hefur hann ritað nafn: "Konungur konunga og Drottinn drottna."
Þetta ótrúlega hatur bræðra Múhammeðs magnast upp.  Siðspilltir skjóta þeir á bræður vora í Ísrael og hika jafnvel ekki við að ala syni sína hatri og senda sprengjum búna til sjálfsvígs.
Ótrúleg þykir mér einnig samúð margra vorra Vestrænu bræðra með djöfullegum málstað arabanna og nefni hér sem dæmi félagsskap vinstri Guðlausra hér á landi Ísland-Palestína, sem hvað eftir annað kemur fram með lygum og rógburði.
Sannlega eru handbendi Kölska mörg og máttug.  Þau munu þó öll skelfast og uppbrenna þegar Drottinn vor Jesú snýr aftur á Efsta Degi.
Amen
Ó systir í Kristi, hjarta mitt  er fullt harmi:
Eins og sauður til slátrunar leiddur,
og sem lamb þegir hjá þeim, er klippir það,
svo lauk hann ekki upp munni sínum.
33 Í niðurlægingunni var hann sviptur rétti.
Hver getur sagt frá ætt hans?
Því að líf hans var hrifið burt af jörðinni.
Bræður mínir í Kristi - biðjið með mér í kvöld
....að áhangendur siðlausrar keppni þar sem hver annar kynvillingurinn veður uppi skulu hafa áhuga á veðmálum.
Sannkristnir bræður hafa alla andstyggð á veðmálum hvers kyns.  Það er skömm að þessu og mæli ég með að keppni þessari verði framvegis ekki sjónvarpað hér á landi.
Þetta vekur upp óhug minn.  Hvernig getur slík illska blómstrað? Mig grunar helst að þessi drengur hafi verið meðlimur í einhverjum svartmessusöfnuði ellega sturlaður af eitulyfjum:  Helsælu eða ópíum.
Munið:
Hann hefur blindað augu þeirra
og forhert hjarta þeirra,
að þeir sjái ekki með augunum
né skilji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.
Ég mun biðja fyrir morðingjanum í kvöld.
Vér Sjálfstæðir munum mæta þér og þínum óþjóðalýð með hörðu ef með þarf.  Drottinn gaf oss Jörðina til yfirráða og skepnur himins, sjávar og lofts eru okkar að nýta.
Komir þú munt þú mæta mér af afli - mér og öllum Sjálfstæðum bræðrum í Kristni.
Liggur umboðið ekki á lausu heldur í höndum stjórnarflokka vorra.  Sá sorgardagur sem margir væntu er vinstri flokkar myndu sveipa landið hulu hárra skatta og Guðleysis rann ekki upp ogeftir stendur leiðtoginn Geir með pálmann í höndunum og stjórnarumboðið í vasanum.
Ég hlæ að hinum vinstri sem héldu þeir gætu unnið án atbeina Drottins.
Upp er runnin sú stund þar sem  Guðleysi það er hreiðrað hefur um sig til fjölda ára í hjarta Kaupmannahafnar mun ekki liðið lengur.  Forfæringasjúkir, latir og óhreinir Guðleysingjar hafa vaðið uppi en nú skal segja: STOPP!
Það er til marks um yfirvegun vorra bræðra í Kristi að jafnvel undir áræti svo sem hlandsteypingu höldum við ró okkar, fullvissir þess að réllætið sigri og að Jesús Drottinn brosi við vorri réttsýni og fyrirgefningu.
Vonandi tekur þetta fljótt af, svo siðsamt líferni geti hafist á ný hjá frændum vorum, Dönum.
Ég vildi að ég gæti sagt að svona háttalag kæmi mér á óvart, en svo er ekki. Í þeim heimshlutum þar sem Kristnin er ekki höfuðgildið, þar eiga sér slíkir hlutir stað.
Mér þykir undarlegt að nú, rúmum 2000 árum eftir fæðingu Frelsarans séu enn svo stór hópur er fylgir falsspámanninum Múhammeð og hafa hatur sem sína helstu trúarlegu sannfæringu. Hatur gerir engum gott en Miðausturlönd virðast þvi miður eiga þá tilfinningu eina gangvart Vestrænum gildum, sóma og sannri trú.
Ég bið fyrir fjölskyldu hins hugrakka hermanns.
Slík varmenni eiga ekki gull skilið, heldur hörku. Þannig læra þeir.
Ég bið fyrir barninu í kvöld.